Fasteignaval ehf. kynnir fjölbýlishús í 200, Kópavogsbær
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Fasteignaval / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Góða 61,4m2 íbúð, tveggja herbergja, á frábærum stað við Furugrund 68, 200 Kópavogur.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og skóskáp, flísar á gólfi. Eldhús er bjart, með eldri innréttingu og góðu skápaplássi, parket á gólfi. Stofa er rúmgóð og björt og þaðan er útgengt út á timbur verönd. Parket á gólfi. Svefnherbergi er bjart með fataskáp og parket á gólfi. Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, flísalagt gólf og veggi við sturtu.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56, [email protected], og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fasteignaval.is
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 55.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.